Áfengi
 

ÁfengiÁfengi :  Alkóhól hefur þær afleiðingar að sjón og heyrn versnar og blekkir þínar eigin tilfinningar.Þegarþúertundir þessum áhrifum á ekki að keyra bíl eða vera á einhverju farartæki .
Alkóhólismi er samspil líffræðilegra, sálfræðilegra og félagslegra þátta. Það er mikilvægt að leita sér hjálpar sem fyrst áður en sjúkdómurinn fer að hafa áhrif á allt umhverfi þitt. Talað er um að fjölskyldur alkóhólista sýkist líka því sjúkdómurinn veldur svo mikillivanlíðan hjá fjölskyldumeðlimum og hvetur til óheilbrigðra samskiptaaðferða.

  • Alkóhólið fer beint inn í blóðrásakerfið og hefur þannig áhrif á öll líffærakerfin .
  • Mikil drykkja getur valdið skorpulifur og krabbamein í lifur.

Notkun alkóhóls veldur bæði andlegum og líkamlegum breytingum hjá þeim sem þess neyta. Eins og önnur alkóhól leysist etanól bæði upp í fitu og vatni og dreifist því um allan líkamann eftir neyslu. Etanól er lítil sameind og þarf því ekki að melta það áður en það sogast út í blóðið. Þetta þýðir að strax og byrjað er að neyta áfengisfer það að sogast út í blóðrásina um slímhimnu í munni og vélinda þó í mjög litlum mæli sé. Um 10-20% af því alkóhóli sem neytt er fer út í blóðrásina í maganum en megnið, eða um 80%, sogast í gegnum slímhimnu smáþarmanna. Sé alkóhóls neytt með gosi sogast það hraðar út í blóðið og því berst alkóhólið í freyðivíni hraðar út í blóðrásina en sama magn í léttu víni án goss. Stöðug ofdrykkja getur valdið verulegum skemmdum á taugakerfinu og þá sérstaklega heila. Það getur lýst sér í breytingum á tilfinningaviðbrögðum einstaklingsins, persónuleika hans og viðhorfum, hæfileikinn til að læra nýja hluti getur minnkað og minni hrakað.

Áfengi hefur ekki einungis áhrif á heilann heldur nánast alla líkamshluta. Hér verður stuttlega gerð grein fyrir hver áhrif mikillar drykkju eru á hina ýmsu líkamshluta. Úttaugakerfið, það er taugarnar sem liggja til og frá heila og mænu, getur orðið fyrir varanlegum skaða af mikilli neyslu áfengis.
Lifrin er helsta efnavinnslustöð líkamans. Það ætti því ekki að koma á óvart að hún er það líffæri sem oftast verður hvað verst úti afvöldum ofdrykkju. Hún sér um að vinna úr allt að 95% af öllu því alkóhóli sem berst út í blóðið og við niðurbrot áfengis myndast mörg efni sem geta ert og skemmt lifrarvefinn. Helsta einkennið er dofi í útlimum sem síðar getur orðið að tilfinningaleysi og kraftleysi.
Síðast en ekki síst má nefna að áfengisdrykkja á meðgöngu getur valdið fósturskaða og haft áhrif á þroska hins ófædda barns síðar meir. Alvarlegustu skemmdir sem áfengisneysla á meðgöngu getur haft er svokallað áfengisheilkenni en þar fer saman minnkaður vöxtur, lítill heili, gat milli gátta hjartans, stutt augnrifa og vanþróaðir kjálkar.