Hvað eru mörg bein í mannslíkama og af hverju eru börn með fleiri bein þegar þau eru yngri?
Þegar börn fæðast eru þau með 300 bein í líkamanninum og fullorðnir eru með 206 bein. Það sem gerist er að þegar börn fæðast eru þau með litla beinhluta í líkamans að þegar þau stækka og þroskast þá smellast beinin saman og verða að einu stóru.
Beinin skiptast í tvo parta ásgrind og límagrindin.
-Ásgrindin (Stöðuvöðvar): Latneska heitið Axial skeleton. Í ásgrindinni eru 80 bein. Í ásgrindinni eru höfuðsbein, hrygg- og brjóstkassar. Í höfðinu eru 28 bein, átta bein í höfuðkúpunni. Höfuðið tengist svo við hryggsúluna sem samanstendur 32 hryggjaliðum. Frá hryggjaliðunum liggja 12 pör af rifbeinum sem tengja bringubeinið að framan.
-Límagrindinn(hreyfivöðvar): Latneska heitið Appendicular skeleton. Í límagrindinni eru 126 bein. Í límagrindinni eru handleggir og fótleggir. Limagrindin tengist við ásagrindina við axlir og mjaðmir. Herðablöðin hafa tvö flöt bein og þau tengjast við bringubeinið og viðbeinið. Handleggirnir hafa 32 bein og fótleggirnir hafa 30 bein hvorir um sig.
Einnig er áhugavert að vita að þessi 80 bein sem eru í ásgrindinni eru það sem mynda beinagrindina sjálfa en hin 126 beinin í limagrindinni eru fylgihlutar.

Hvað heitir stærsta beinið í líkamanninum og hver eru þrjú minnstu bein líkamans?
-Stærsta beinið kemur úr lærinu sem kallast lærleggur einnig er það þyngsta, lengsta og sterkasta beinið og það getur þolað u.þ.b 800-1100 kg álag. Lærleggurinn er langur og nettur í mönnum en í öpum er hann styttri , þykkari og sveigðari.
-Minnstu beinin þrjú koma úr miðeyranu. Hamar(malleus) , Steðji (incus) , ístað (Stapes)
Skaftið á hamrinum er fest við innra borð hljóðhimnuna í eyranu. Hausinn á hamrinum myndar liðamót við steðjann sem myndar liðamót við ístað sem tengist inn í eyrað.
- Viðbein eru 2 og mynda axlagrindina ásamt herðablöðum. Einnig eru þau grönn og S-laga svo þau geta fest upp handleggina við búkinn.
Einnig má vita að viðbeinið er það sem brotnar oftast hjá fólki.
|