![]() |
|||
Hvað er það jákvæða og neikvæða við íþróttir: Íþróttir eru skemmtilegar og maður fær góða hreyfingu útúr þeim. Þegar þú ert að keppa í íþrótt eða horfa á íþrótt þá verður þú svo spenntur og úr svona spennu fær maður adrenalín sem er yfirleitt mjög svo skemmtilegt. Æsingur vegna keppnisíþrótta getur þó valdið slagsmálum og skemmdarverkum sem er skaðlegt fyrir samfélagið bæði vegna slysa á mönnum og eyðileggingar sem af þessu hlýst. Sem dæmi má nefna leik Liverpool og Juventus úrslitaleik meistaradeildarinnar 1985. Þegar klukkutími var liðinn af leiknum skoraði Juventus úr vítaspyrnu og voru stuðningsmenn Liverpool orðnir mjög svo æstir og endaði þetta með því að þeir réðust á stuðningsmenn Juventus. Þetta hafði þær afleiðingar að stúkan brotnaði,39 manns dóu og 100 slösuðust. Íþróttaslys og meiðsli: Þegar menn eru tæklaðir eða tekið illaá þeim í fótbolta og handbolta svo dæmi sé tekið geta þeir meiðst alvarlega og geta slík meiðsli jafnvel eyðilagt ferilinn. Eiður Smári Guðjónssen meiddist t.d. eitt sinn mjög illa og honum var sagt að hann mundi ekki geta spilað aftur en hann fór til Íslands og fór í aðgerð. Hann spilar fótbolta í dag og stendur sig vel. |
|||