Samfélag

Hvaða áhrif hafa keppnisíþróttir á samfélagið ? : Þrátt fyrir að stundum sjóði upp úr á íþróttaleikjum og ákveðnir hópar, svokallaðar íþróttabullur, gangi nánast af göflunum hafa keppnisíþróttir almennt mjög góð áhrif á samfélagið í heild. Þær hafa mikið uppeldisgildi því þær aga fólk og efla samkennd innan ákveðinna hópa.  Íþróttafólk hreyfir sig mikið svo það er yfirleitt vel á sig komið líkamlega og það er líka gaman að horfa á íþróttir, hollari skemmtun er vart hægt að stunda.


Hvernig hefur heilsan og heilsustjórn áhrif á samfélagið Ef þegnarnir hugsa um að vernda eigin heilsu með réttu mataræði og hollri hreyfingu dregur úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu. Hjarta- og æðasjúkdómar eru t.d. mun algengari hjá of feitu fólki og þeim sem gæta ekki að mataræði og hreyfingu.  Við verðum að gera okkur grein fyrir að hver innlögn á sjúkrahús kostar gífurlegt fé sem innheimt er með sköttum.  Það er því hagur okkar allra að sem flestir hugsi vel um eigin heilsu.  hjartasjukdomur