Vímuefni

Vímuefni : Ofskynjunarefni eru efni sem geta breytt raunveruleikaskynjun einstaklingsins. Algengustu efnin hér á landi eru LSD ogsveppir. Einstaklingur undir áhrifum þessara efna skynjar hvorki stund né stað, ogfjarlægðarskynið breytist. Auk þess getur þetta efni valdið ofbeldisfullri hegðun.
Nokkrir punktar um hvernig ofskynjunarefni hafa áhrif á einstaklinginn:
sveppir

 

 

  • Eykur hjartslátt og hækkar blóðþrýsting.
  • Veldur svefnleysi og skjálfta.
  • Minnkar sársaukaskyn og snertitilfinningu og getur því orðið til þess að einstaklingar ganga langt í líkamsmeiðingum bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum.
  • Einstaklingnum finnst hann úr snertingu við umhverfið og verður mjög einmana.
  • Einstaklingurinn verður ringlaður og óöruggur. Hann veit oft ekki hvað er raunveruleiki og hvað er ímyndun.  Hann verður tortrygginn og finnst hann vera að missa stjórn á aðstæðum og lífi sínu.
  • Stundum má sjá einstakling í stjarfaástandi, þá situr hann og starir fram fyrir sig og erfitt er að ná nokkru sambandi við hann. Hann er áttar sig illa á stað og stund og endurtekur gjarnan merkingarlaus orð fyrir munni sér.

Hvað er fíkn?
Að sumu leyti má bera fíkn saman við krabbamein. Til að skilja hinar ólíku tegundir krabbameins þurfum við fyrst að átta okkur á hvað er sameiginlegt með þeim. Öll afbrigði krabbameins fela í sér að frumum fjölgar stjórnlaust. Eins fela allar gerðir fíknar í sér stjórnlausa og ómarkvissa leit að lífsfyllingu. Allir fíklar mynda ákveðið samband við eitthvert efni eða atferli til að komast í visst hugarástand, vímu eða leiðslu.