  |
Compton, gengur einnig undir nafninu Hub City sem er lítið hverfi inn í Los Angeles.
Compton er eitt elsta hverfið í ríkinu. Hún var reist árið 1867 af 30 mismunandi fjölskyldum , leiðtoginn var Griffith Dickenson Compton. Æskuár Comptons voru erfið , veðrið var kalt og blautt. Þyrfti fólk eldivið þyrfti það að fara í þriggja daga ferðalag til fjallanna nálagt Pasadena. Einnig voru bara tvær búðir á svæðinu á þessum tíma ein í Pueblo og hin í Wilmington. Báðar voru þær langt í burtu þannig fólk þurfti að fara á hesti eða gangandi sem tók mun lengri tíma.
Í lok 1868 voru bæjarbúar farnir að sjá móta fyrir einhverskonar framtíð og þeir byggðu skóla sem var líka kirkja. Árið 1859 var farið að kalla bæinn Compton. Hann var upprunalega kallaður Gibsonville en seinna Comptonville. Eftir töluvert þref var ákveðið að stytta nafnið í Compton. Menntakerfið í Compton býður uppá menntun fyrir alla krakka á Grunnskólaaldri. Á svæðinu eru 24 grunnskólar , unglingaskólar , 3 menntaskólar og einn fullorðinsskóli sem er óhefðbundinn framhaldsskóli.
|