Falin skilaboð eru allstaðar í kringum okkur en oft tökum við ekki eftir þeim. Í Compton er mikið um falin skilaboð og sérstæð merki í landlaginu eftir íbúanna. Til dæmis hanga oft skór á reimunum á símalínum og táknar það að einhver hefur dáið á því svæði og margir eru svo fátækir að þeir hafa ekki efni á legsteinum svo þetta er oft leiðin til að minnast þeirra.


Fleiri falin skilaboð má finna í veggjakroti sem finnst um allt Compton. Gengin nota veggjakrot mjög mikið til að merkja sér stað en sumt er bara skreytingar. Merkingar gengjanna eru oftast bara stafir og örvar til dæmis ef maður sérð merkingu með nafni á gengi og ör niðir þá veit fólk að það er statt í hverfinu þeirra.
Fleiri falin skilaboð eru falin í húðflúrunum og eins og margar aðrar myndir segja sum sögu, önnur segja hvaða í hvaða gengi fólk er eða hvaða hverfi það stendur fyrir.

Þau húðflúr sem segja sögu eru oft ekki meira en lítill kross eða tár fyrir einhvern sem fólk hefur misst en önnur segja óhugnanlegri sögur, meðal annars af ofbeldi, nauðgunum og jafnvel morðum.