  |

Compton betur þekkt sem höfuðborg klíkuskaps í heiminum er heimasvæði 68 virkra gengja sem öll vinna meira og minna í sama stíl, til dæmis með sölu eiturlyfja, þjófnaði, ofbeldi og fleiru.
Frægust þessara gengja eru:
-
Surenos – Gengi af rómönskum uppruna sem vinnur bæði innan veggja fangelsa sem og utan. Tengd heimi eiturlyfja, ofbeldis, íkveikja og leigumorða.
-
Mexíkóska Mafían – Fangelsis klíka sem nær með ofbeldi, fjárkúgunum og morðhótunum að koma skipunum sínum út fyrir veggi fangelsisins. Mexíkóska Mafían eru þeir sem ráða í skuggum fangelsa í nágreninu með því að bjóða vernd fyrir þjónustu ásamt hótunum, Mafían selur líka eiturlyf í fangelsum.
-
Crips – Eitt af frægustu gengjum heims fyrir yfir 40 ára langt valda stríð við Bloods í Compton. Crips er eitt af stærstu gengjunum og samanstendur einungis af svörtum einstaklingum. Eins og svo mörg önnur gengi þá stunda þeir eiturlyfja sölu, innbrot, þjófnað og grípa oft til ofbeldis jafnvel skothríða. Crips ólu einnig af sér marga af frægustu röppurum heims s.s Snoop Dogg, Ice Cube, coolio og Eazy E. Hægt er að þekkja Crips á einkennislit þeirra bláum.
-
Bloods – Erkifjendur Crips en eiga samt margt sameiginlegt með þeim s.s það að þeir eru bæði al svart gengi og hvernig þeir starfa. Bloods einkennast af rauðum klæðnaði og því að þeir nota aldrei „C“ í orðunum sínum heldur „B“ í staðinn t.d Compton = Bompton.
Þessi gengi hafa áhrif á líf fólksins á svæðinu á marga vegu, og oft meira en við höldum.Þessi gengi valda ótta og láta fólk sækjast eftir vernd fyrir þjónustu en þegar þú gengur í gengi fórnar þú þeim draumum um menntun og nánast alla framtíð sem þú átt fyrir þér. Sá draumur um að láta gott af sér leiða endist stutt í svona samfélagi og með litla sem enga menntun er afar ólíklegt að þú lifir yfir höfuð nógu lengi til að verða fullorðin. En það eru alltaf undantekningar og James Baldwin, höfundur „the fire next time“ var einn af þeim. Í bókinni talar hann um hinar 2 leiðir hvernig þú getur lifað af í gettóinu, ein er að ganga í gengi og starfa undir þeirra flaggi í blíðu og stríðu og annar að leita til kirkjunnar og lifa í gegnum hana. |