  |
Að lifa í Compton hverfinu getur reynst erfitt, sérstaklega þegar umhverfið í kringum mann er fullt af fíkniefnum , ofbeldi og vopnum. Íbúarnir gera margt til að flýja þennan lífsstíl með því meðal annars að byrja á fíkniefnanotkun. Helsta fíkniefnið í Compton er marijúana þótt að flestir í hverfinu telji marijúana ekki fíkniefni, en þar hafa þau rangt fyrir sér. Þegar fólk reykir marijúana brenna THC krystalarnir upp og leysast úr læðingi í blóðrás einstaklingsins og valda svima, ofsjónum og minnisleysi.
Önnur áhrif sem láta oft ekki á sér bera fyrr en mánuðum eftir notkun eru tímabundið þunglyndi. Áreiðanlega eitt af hættulegri afköstum marijúana notkunar því fólk áttar sig oft ekki á því að þunglyndið er tímabundið og leitar oft í sterkari eiturlyf eða jafnvel sjálfsvíg.
Læknisfræðilegu kostirnir við marijúana hafa líka verið rannsakaðir. Marijúana er oft gott fyrir alnæmissjúklinga , krabbameinssjúklinga og gegn gláku , heila- og mænusjúkdómum og langvinnum sársauka. Annað vinsælt fíkniefni í Compton er krakk. Krakk er kókaín blandað við mettað natríum eða ammoníak sem er svo hitað og síðan reykt til að kalla fram sælutilfinningar í u.þ.b 10-20 mínútur. Eftir vímuna koma afleiðingarnar sem þýðir að fíkillinn leitar samstundis í meira.
„Gettóið“ getur haft áhrif á sterkan persónuleika og brotið hann niður. Aðalástæðurnar fyrir því er lítil menntun, klíkuofbeldi og að fólk lifir í ótta. Yfirvöld segjast ráða við þessar aðstæður og geta stoppað þetta en hægt er að velta fyrir sér af hverju þau gera það ekki.


|