![]() |
|
Dúkkan okkarÞar sem við fjöllum um Waldorf-stefnuna og dúkkurnar sem fylgja þeirri stefnu ákváðum við að sauma okkar eigin Waldorf-dúkku. Þar sem dúkkan er einungis gerð úr náttúrulegum efnum þurftum við að fylgja þeirri hefð, og því notuðum við einungis kembda ull, bómullarefni og tvinna úr náttúrulegum efnum. Við byrjuðum á að koma höfðinu saman. Þar settum við ull inní grisju og mótuðum síðan höfuðið eins og við vildum hafa það. Eftir það klipptum við efni til að nota í líkamann og settum ullina inní til að dúkkan yrði mjúk. Síðan þurfti að handsauma dúkkuna saman, líkamann, handleggina og höfuðið. Þá voru augun og munnurinn saumuð, og að lokum hárið, allt úr perlugarni. Útkoman var góð og reynsla þessarar vinna mun eflaust nýtast okkur vel. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem greina frá ferlinu.
|