![]() |
|
Heimsókn í leikskólann LaugaborgVið heimsóttum Laugaborg, leikskóla sem staðsettur er á Leirulæk rétt við Laugalækjarkóla, til þess að kanna mismunandi viðbrögð leikskólabarna við Barbie-dúkku annars vegar og hins vegar Waldorf-dúkku. Við tókum þau upp á myndband og spurðum þau nánar út í svipbrigði og skap dúkkanna, þar sem Barbie-dúkkan brosir sínu breiðasta meðan Waldorf-dúkkan sýnir engin svipbrigði. Áhugavert er að sjá hvernig börnin handléku dúkkurnar, og muninn sem þar er á. Svörin geta einnig sýnt hvernig börnunum er innanbrjósts, þá sérstaklega þau svör sem snerta Waldorf-dúkkuna. Sem dæmi má nefna að ein stúlka sagði að Waldorf-dúkkan væri leið því hún ætti enga vini, en óvíst er hvort það eigi við stúlkuna. Allar stelpurnar voru sammála um að Barbie-dúkkan væri glöð, líklegast vegna breiða brossins hennar, en engin stelpnanna vissi af hverju hún var glöð. Þegar spurt var hvað Barbie-dúkkan héti kom svarið Brynja hjá einni stelpu. Hægt er að áætla að það sé nafnið á einhverjum sem stendur henni nær, svo sem mamma, amma, besta vinkona eða annað. Svörin komu ýmist á óvart þótt önnur væru einsog við höfðum áætlað, feimni kom oft í veg fyrir að barnið gæti tjáð skoðanir sínar og sáum við því ekki ástæðu til að birta myndbandið hér á vefnum. |