![]() |
|
Heimsókn í LaugarnesskólaÞar sem við fjöllum um leikföng og hvernig þau hafa áhrif á börn vildum við spyrja börn um leikhætti þeirra og hvernig þau eyða frítíma sínum til að fá okkar eigin niðurstöður. Við ákváðum að spyrja þau þessara spurninga því við vildum fá dýpri innsýn í líf barna og hvernig leikhættir þeirra hafa þróast. Fyrst útbjuggum við spurningablað sem allir 6. bekkingar svöruðu síðan munnlega, þar sem þeir svöruðu annað hvort rétt eða rangt. Efst á spurningablaðinu merkti barnið við hvort það væri stelpa eða strákur, og síðan byrjuðu spurningarnar, en niðurstöðurnar eru skiptar niður eftir kynjunum á skífuritunum. Fyrsta spurningin var hvort þau þyrftu nákvæma eftirlíkinu af leikfangi til að leika sér. Til að skýra þá spurningu nánar vildum við vita hve margir þyrftu t.d. nákvæma eftirlíkingu af hesti til að geta leikið sér með hann, en ekki aðeins kústskaft.
Önnur spurningin var hvort börnin léku sér í leiktækjum á skólalóðinni í frímínútum. Þar sem mikið er um að velja þegar á frímínútum stendur var skiljanlegt að ekki margir svöruðu rétt, en niðurstöðurnar voru mismunandi eftir kynjum. Fleiri strákar svöruðu rangt, en eins og sést í næstu spurningu taka margir þeirra þátt í hópleikjum.
Þriðja spurningin var síðan hvort börnin tækju þátt í hópleikjum, svo sem Eina krónu, Yfir, Löggu og bófa o.fl. Stór meirihluti stelpna svaraði rangt, en hjá báðum kynjum voru margir sem svöruðu stundum.
Fjórða og síðasta spurningin var hvort börnunum finnst tölvuleikir skemmtilegri en útileikir. Eins og skiljanlegt er var aðeins ein stelpa sem svaraði rétt, en tæplega helmingur stráka svaraði rangt.
Eins og sést er ekki alltaf mikill munur milli kynjanna, en mesti mismunur var á svörum síðustu spurningarinnar þar sem 89% stelpna svöruðu rangt en aðeins 48% stráka. |