|
Mattel-fyrirtækið
Elliot Handler og Ruth kynntust í háskóla á 4. áratugnum. Þau giftust eftir háskólann og stofnuðu sitt eigið fyrirtæki sem framleiddi handsmíðaða tréramma þar sem Elliot og Harold, vinur hans, smíðuðu þá og Ruth sá um markaðssetningu.
Úrgangurinn frá trévinnslunni notaði Elliot til að smíða lítil dúkkuhúsgögn sem þau síðan seldu.
Seinna meir stofnaði þríeykið fyrirtækið Mattel, nafnið samansett úr nöfnum þeirra, Mattson og Elliot. Mattel óx fljótt úr arðbæru fyrirtæki yfir í fyrirtækis risa.
Ruth ferðaðist til Sviss seinna á 6. áratugnum og keypti þar þýska „Lilli“ dúkku sem hafði langt, svart hár bundið í tagl.
Þessi dúkka veitti henni innblástur til að hanna Barbie dúkkuna. Ruth vissi strax hvernig hún vildi hanna dúkkuna og fékk í lið með sér Charlotte Johnson til að hanna föt á hana.
Árið 1959 fengu þau Ruth og Elliot einkaleyfi á dúkkuna og ákváðu að skíra dúkkuna Barbie eftir sinni eigin dóttur, Barbara. Stuttu seinna hönnuðu þau í sameiningu karlmannsdúkku sem þau skírðu Ken eftir syni sínum. Dúkkurnar Barbie og Ken voru auglýstar og seldar sem ástfangið par.
Aðeins ári seinna var hún sett í sölu. Almenningur brást vægast sagt vel við, en það tók Mattel nokkur ár að bregðast við eftirspurninni.
Barbie hefur breyst mikið í gegnum árin eftir tísku. Hún hefur fengið fleiri aukahluti einsog töskur, bað, ískápa, mat, hillur, sófa, bíla og margt fleira, en nú er til endalaust úrval af fötum, höttum og skóm á hana og Ken.
Þótt sala á Barbie dúkkunni hafi dalað í gegnum árin hefur hún alltaf haldið velli sem tímalaus klassík sem allir muna eftir.
|