|
Leikföng sjöunda áratugarins
Leikföng urðu öruggari á 7. áratugnum því leikfangaframleiðendur þurftu að fylgja öryggisviðmiðum þar sem t.d. skarpar brúnir og eitruð litarefni voru bönnuð. Plastið ruddi sér braut, en hin víðfræga „Barbie“ dúkka framleidd af Mattel hafði litið dagsins ljós í New York árið 1959.
Í fyrsta skipti mótmæltu sálfræðingar leikföngum, að þau leyfðu ekki ímyndunarafli barnsins að þroskast almennilega.
,,G.I. Joe“, fyrsta hasarfígúran kom á markað, en hann var nákvæm eftirlíking af hermönnum. Talandi dúkkur urðu einnig vinsælar með dúkkurnar Chatty Baby og Sister Small-Talk fremstar í flokki.
Margir leikfangaframleiðendur reyndu að setja á markað nýja dúkku til að keppa við hina sívinsælu ,,Barbie“ dúkku. Mesti keppinautur hennar var ,,Sindy“ dúkkan þó hún hafi aldrei náð sömu hæðum og ,,Barbie“ dúkkan. Sindy var mjög vinsæl í Bretlandi, þar sem hún var framleidd, en ástæðan fyrir misheppnuðum tilraunum til að selja hana í Ameríku var sögð vera sú að hún væri ekki nógu amerísk í útliti.
Barbie þótti ekki flýta þroska þegar hún kom fyrst fram á markað, heldur gaf hún stúlkunni von um aðra framtíð en hafði beðið móður hennar. Hún þótti einnig sýna stúlkunum tenginguna milli þess að vera fullorðinn, hafa lögulegan líkama og vera frjáls í hugsun. 
Hinn svokallaði ,,Easy-Bake Oven“ kom á markað árið 1963, en útlitið var hannað eftir þeim ofnum sem gengu og gerðust á þeim tíma, en hann var framleiddur af Kenner Toys leikfangafyrirtækinu. Teikniborðin ,,Etch-a-Sketch“ urðu mjög vinsæl. Þau voru teiknuð af André Cassagnes, en áður hafði hann farið með teikningu sína til ýmissa fyrirtækja án nokkurs árangurs. The Ohio Art Company framleiddi leikfangið fyrst árið 1960 og er það enn framleitt í dag.
Mörg vinsælustu leikfanga 7. áratugarins eru enn seld þó þau séu ekki jafn vinsæl og í upphafi. |