Þróun leikfanga síðustu 50 ár

Börn hafa leikið sér að einhvers konar gerðum af leikföngum síðan menn muna.
Flest börn eru fær um að sitja tímum saman og leika sér að hverju sem sett er fyrir framan þau. Ímyndunaraflið flýgur af stað og leikurinn breytist eftir huga barnsins.
Á 21. öldinni hafa orðið miklar breytingar á leikföngum barna. Rafhlöðum, gervigreind, rafmagni, hljóðum og ýmis konar efnum hefur verið bætt við leikföng  og framleiðendur keppast við að koma með „nýja og flotta“ leikfangið sem allir vilja.
En leikföng voru ekki alltaf tæknileg. Fyrir tæplega 50 árum voru teikniborð og tuskudúkkur vinsælar og einfaldar fígúrur úr kvikmyndum slógu í gegn.

  • 1960-70 – Leikföng urðu öruggari á 7. áratugnum, þar sem að leikfangaframleiðendur þurftu að fylgja öryggisviðmiðum þar sem t.d. skarpar brúnir og eitruð litarefni voru bönnuð. Plastið ruddi sér braut og hin víðfræga „Barbie“ dúkka framleidd af Mattel leit dagsins ljós í New York. „Spacehopper“ kom á markað einu ári á undan tunglferðinni.
    „Spacehopper“ er einhverskonar stór skopparabolti í barnastærð með tveimur höldum til að halda í á meðan að barnið hoppar sitjandi á boltanum. „Easy Bake Oven“ kom á markað sem

  • 1970-80 – Þessi áratugur varð fyrir miklum afturkipp vegna Víetnamstríðsins og fleirum baráttum svo hætt var að framleiða öll leikfangavopn. Þá varð t.d Action Man meiri ævintýrakönnuður en ekki hermaður. Danska leikdótið „Lego“ varð mjög vinsælt.

  • 1980-90 - Á þessum áratug var framleitt mikið af heimilistækjum úr plasti í barnastærð.
    Fyrsta nestisboxið úr plasti var framleitt.
    Á þessum áratug komu út fyrstu tölvuleikirnir og flest börn léku sér einungis að tölvunni. Leikir einsog „Space Invaders“ voru fáanlegir á handhægum tölvum.
    Fantasíudót varð vinsælt einsog strumpar, Pony hestar, Care Bears, bleikir, bláir, gulir og grænir bangsar í kössum.Trivial Pursuit kom út stuttu eftir 1983 og það er ennþá selt í dag.

 

  • 1990-2000 – Á 9. áratugnum voru siðferði, vistfræði og umhverfisáhyggjur teknar alvarlega og sama gilti um  leikföng. Á þessum áratug var aftur sett bann á ýmiskonar efni í leikföngum.
    Á sama tíma óx salan á geisladiskum, tölvum og tölvuleikjum. Undir lok áratugarins var helmingur seldra leikfanga tölvuleikir, sérstaklega „Game Boy“ sem framleitt var af Nintendo.

 

  • 2000-2010 - Nú geta krakkar valið úr hverju sem er, allt frá böngsum, leikjum, lestum, barnavögnum, rugguhestum og fleiru. Þrátt fyrir hið mikla úrval eru tölvuleikir langvinsælasta afþreyingin. Sífellt nýjar og endurbættar tölvur koma á markað þar sem fyrirtæki keppast um að koma með nýjungar. Wii, Playstation 3 og Xbox 360 leikjatölvurnar hafa verið í harðri samkeppni síðustu ár. Mattel framleiddi Bratz, nýja útgáfu af Barbie.