Hippar

 

Á sjöunda áratugnum var hippahreyfingin í algleymingi. Þeir voru upphaflega æskuhreyfing sem hóf göngu sína í Bandaríkjunum. Þeirra stefnuskrá fólst í sem mestu frelsi, bæði í sambandi við notkun eiturlyfja og við kynlífsathafnir.
Hápunktur hippatímans var Woodstock tónlistarhátíðin 1969. Var hún haldin í Bethel, New York. Þar spilaði fjöldinn allur af tónlistarmönnum á stóru sviði allan sólarhringinn. Frægir tónlistarmenn sem þar komu fram voru m.a. The Who, Jimi Hendrix, Crosby, Stills and Nash og Janis Joplin svo nokkrir séu nefndir.
Woodstock hátíðin var mjög fjölmenn og voru fleiri einstaklingar þar viðstaddir en íbúafjöldi á Íslandi í dag. Upphafsmenn hátíðarinnar voru Michael Lang og Atrie Kornfeld. Þeir fengu þá hugmynd að halda stóra útihátíð og höfðu samband við John Roberts og Joel Rosenman í fjáröflunarskyni. Fyrsti valkostur um staðsetningu var ekki samþykktur af staðarbúum en fjórmenningarnir reyndu hvað þeir gátu til að fá svæðið leigt. Fljótlega eftir höfnunina fengu þeir símtal frá bareiganda um 600 ekru svæði sem hægt væri að nota. Svæðið var í eigu Max Yasgur, mjólkurframleiðanda.
Undirbúningur hófst um leið og þeir fengu staðfestingu á afnotum svæðisins. Búist var við 200 þúsund manns og byrjaði fólk að streyma inn á svæðið þann 11.ágúst.
Hipparnir kynntu einnig lauslæti sem eitthvað gott í sjálfu sér. Þeim fannst frelsandi að spranga um nakin og njóta kynlífs með hverjum sem er. Það hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir yngri kynslóðir sem á eftir þeim komu.