Lauslæti og siðferði

 

Út frá hippunum kom lauslætið vel í ljós. Kæruleysi í kynlífsathöfnum jókst og leiddi oft til kynsjúkdóma. Siðferðiskennd ungra manna fór ört þverrandi og fyrr en varði fannst fólki hið minnsta mál að stunda kynferðislegar athafnir með hverjum sem er á opnum vettvangi. Einnig urðu svokölluð opin hjónabönd mjög algeng á sjöunda áratugnum, þar sem hjón notuðu minnstu tilefni að stunda kynlíf með öðrum en maka sínum.

Í dag er lauslæti stærra vandamál. Kynsjúkdómar breiðast út og eyðileggja líf margra. Lauslæti kvenna er álitið að meira leyti forkastanlegt en karla. En vert er að minna á að til er fjöldi karla sem nýta sér þennan lífstíl.

Siðferði er nauðsynlegt því ef ekki væri fyrir almenna kurteisi og hugprýði væri íslenskt samfélag og önnur í óþægilegri stöðu.