|
||
|
||
|
Mynd þessi sýnir niðurstöður úr rannsókn sem gerð var um land allt meðal tíundu bekkinga. Þau voru spurð hvort þau hefðu haft samfarir og þá hvenær fyrsta skiptið var. Útkoman var merkileg. Sjá má að einstaka unglingur hafði haft kynmök fyrir 12 ára aldur og aðeins fleiri við 13 ára aldurstakmörkin. Það telst einkar ungt hér á landi. Mikið stökk er í prósentutölunni á milli 13 og 14 ára aldurs, hjá báðum kynjum en talan hjá stelpunum hækkar verulega. Þegar breytingarnar sem orðið hafa á þessu tímabili eru skoðaðar nánar kemur í ljós að enn fleiri virðast hafa haft samfarir þegar kemur að 15 ára eða eldri aldurshópnum og þar halda stelpurnar hærra hlutfalli en strákarnir. Það er þó minnihluti sem segist hafa stundað kynmök í tíunda bekk og virðist það yfirleitt vera skortur á þekkingu sem leiðir til kynlífs á svo ungum aldri.
|