ahrif

Forsíða
Saga
Hnefaleikamenn
Áhrif hnefaleika
Búnaður og tækni
Keppni
Heimildir

 

gg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skaðleg áhrif

heili

Áhrif hnefaleika


Hnefaleikar geta verið skaðlegir á heilann og augun og skynjun líkamans .
Mjög flókið er að rannsaka áhrif höfuðhögga  vegna þess að heilinn er flókið fyrirbæri .
Í áhugamannahnefaleikum fá menn mörg högg á höfuðkúpuna með hnefa með hanska .
Við höggið hreyfist heilinn til innan í höfuðkúpunni og mar getur komið á heilann.
Högg geta annað hvort komið beint á höfuðkúpuna eða á gagnaugað .
Árið 1981 rannsakaði Rimel áhrif heilahristings á heilann .
Hann komst að því að minniháttar höfuðáverkar höfðu áhrif á athygli, einbeitingu og minni.
Rannsóknir hafa einni sýnt að höfuðhögg hafa áhrif á vinnsluhraða  minnisins .
Árið 1993 var gerð rannsókn á 25 áhugamannaboxurum og 25 einstaklingum sem ekki boxuðu .
19 boxaranna reyndust vera með skemmdir í augum vegna mars af völdum áverka.
Í 24 % augnanna fannst rof í sjónhimnu en slíkur áverki getur leitt til blindu ef ekki er brugðist rétt við honum.
Í samanburðarhópnum reyndist einn maður vera með lítils háttar galla í auga .
Allir hinir komu eðlilega út í augnskoðun.
Engin aldursmörk eru tilgreind í ólympískum hnefaleikum en keppni er leyfð frá 8 ára aldri.
Börn gera sér litla grein fyrir hættunni á langvinnum heilakvillum  sem geta komið fram mörgum áratugum eftir  þátttöku í hnefaleikum.
Árið 1995 voru 41 boxari og 27 einstaklingar sem ekki stunda box  sendir í taugasálfræðipróf.
Niðurstöður sýna að 27 einstaklingar sem ekki stunda box  komu mun betur út í taugasálfræðiprófi.
Ári 1995 voru 34 boxari og 34 einstaklingar sem ekki stunda box  sendir í heilarannsókn.‘
Í rannsókninni var rannsakað blóðflæði í heila .
Einstaklingar sem ekki stunda box voru með færri afbrigðilegar niðurstöður en boxararnir.

könnun