Velkomin/nn á síðuna okkar. Við heitum Guðmundur Sigurðsson, Guðbjartur Hákonarson og Guðmundur Ingi Jónsson . Síðustu þrjár vikur höfum við unnið að þessari síðu, í svokölluðu lokaverkefni. Yfirheiti verkefnisins er menntun, listir og vísindi í 50 ár.
Við lögðum fyrir okkur spurninguna
,,Hvað er erfðatækni og hvernig gagnast hún manninum?“.
Til þess að svara þessari spurningu öfluðum við okkur heimilda bæði úr bókum og af netinu. Síðan var hafist handa við textagerð.
Við tókum viðtal við Dr. Hákon Guðbjartsson, framkvæmdarstjóra upplýsingatæknisviðs Íslenskrar Erfðagreiningar og spurðum hann út í fyrirtækið og starfsemi þess.
Við reyndum að tengja verkefnið við öll fög skólans og það heppnaðist vel.
Takk fyrir. |