Þar sem við erum báðar á fullu í frjálsum og fótboltanum getum við sagt mikið um þetta verkefni út frá okkur. Það komu margar rannsóknarspurningar til greina en við ákváðum að velja spurninguna: Hvaða áhrif hefur íþróttastarf á unglinga? Skoðuð voru bæði neikvæð og jákvæð áhrif íþróttastarfsins og gagnvirk áhrif íþróttastarfs og samfélagsins. Markmiðið var að sjá mismunandi viðhorf persóna á íþróttaiðkun unglinga.
Gerðar voru kannarnir og tekin allskyns viðtöl en við fundum einnig ýmsar staðreyndir út frá okkur sjálfum. Lokaniðurstaðan var sú að íþróttaiðkun barna og unglinga á að vera þroskandi, bæði líkamlega, andlega og félagslega.
Höfundar:
Gréta Rut Bjarnadóttir og Vera Sigurðardóttir.
Laugalækjarskóla 2010 |