Íþróttir hafa gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í mörg herrans ár. Íþróttaiðkun hefur mikið að segja fyrir heilsu einstaklinga og hvað varðar forvarnir því ungmenni sem stunda íþróttir eru líkleg til að ástunda heilsusamlegt líferni.
Íslendingar eru mjög stolt þjóð og þegar kemur að stórum íþróttaviðburðum eru allir Íslendingar í sama liði og standa saman. Gott dæmi um það er þegar karlalandsliðið í handbolta er að spila, meirihluti þjóðarinnar fylgist spenntur með.
Samfélagið þarf að sjá fyrir öllu því sem fylgir íþróttastarfi en samfélagið mótast einnig og hagnast af því starfi vegna þess að íþróttaiðkun og heilsusamlegt líferni dregur úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu. Nú á dögum er fátt sem maður fær ókeypis og að halda við mikilvægu íþróttastarfi kostar sitt en er þó þess virði.
Eftir að aðstæður breyttust hefur árangur afreksmanna batnað mjög og aðsókn aukist töluvert en þó áttum við afreksmenn fyrr á árum. Þann 17.júní 1959 var Laugardalsvöllur vígður en fram að því hafði íslenskur frjálsíþróttamaður, Vilhjálmur Einarsson, þurft að æfa í útlöndum vegna skorts á góðum aðstæðum hér heima en hann vann samt sem áður frækilegasta íþróttaafrek sem íslenskur íþróttamaður hefur unnið á erlendri grund. Það var þegar hann vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu 1956.
Árið 2008 fengu Íslendingar aftur silfur á Ólympíuleikum. Það var í handbolta og var vel tekið á móti silfurstrákunum okkar hér á Íslandi og hafði það mikil áhrif á þjóðarstoltið, en íþróttir valda oft jákvæðum breytingum á andrúmslofti.
Aðstæður til þess að stunda íþróttir á Íslandi hafa breyst og batnað mjög síðustu ár og er gaman að bera þær saman við það sem tíðkaðist fyrir 50 árum. Íþróttaaðstaðan í Laugardalnum er ein sú besta á landinu og er hún mjög eftirsótt af mismunandi íþróttafélögum. Laugardalshöllin er sú glæsilegasta og æfa allskyns félög í henni, þar á meðal ÍR og Ármann. Fótboltaaðstaðan er einnig frábær og eru þar einn gervigrasvöllur, 4 grasvellir, landsliðsvöllurinn og ein frábær líkamsræktarstöð. Frjálsar íþróttir og fótbolti hafa verið eftirsóttar íþróttagreinar í dalnum og fer aðstaðan sífellt batnandi. Við ákváðum að kanna þetta mál enn frekar og kynna okkur aðstæðurnar. Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir aðstöðu til íþróttaiðkunar í dalnum.