felags-50

Íslenska

Félagslíf Laugalækjarskóla hefur verið fjölbreytt í gegnum árin. Aðstaðan var ekki merkileg í byrjun en var samt reynt að halda skemmtanir fyrir nemendur.  Voru dansiböllin haldin í holi norðurhússins og komu margir af stóru poppurum landsins þar fram, þar á meðal Pétur Krisjánsson og Herbert Gsoli_50uðmundsson.
Fyrir 1980 var komið upp aðstöðu í kjallara suðurhússins fyrir sjöunda og áttunda bekk. Voru það ekki kræsilegar aðstæður; engir gluggar og einn útgangur. Það vantaði samt ekki fjörið og lá við að veggirnir grétu þegar miklar skemmtanir voru haldnar. Var kjallarinn seinast notaður fyrir sex árum en var svo gerður að lagnakjallara.
Fyrsta félagsmiðstöð skólans var stofnuð fyrir fimm árum og var hún kölluð Laugó. Hefur sú starfsemi verið alveg ómetanleg seinustu ár og verið mjög virkur þáttur í félagslífi nemenda.  Laugó er rekin af Reykjavíkurborg en er í miklu samstarfi við skólann sjálfan. Áður en félagsmiðstöðin var opnuð þurftu nemendur að sækja félagsmiðstöð upp í Þróttheimum og líkaði foreldrum  ekki að börnin þyrftu að fara á misjöfnum tíma og í misjöfnu veðri svona langa leið. Hafði það mikil áhrif og flýtti fyrir opnun félagsmiðstöðvar í hverfinu.

English