|
Íslenska
.Laugalækjarskóli á sér fjölbreytta sögu. Í upphafi árið 1960 var skólinn byggður sem barnaskóli og það voru ekki margir nemendur í honum, aðeins milli 60 og 80 og bara þrír bekkir eða árgangar, enda var þá bara suðurhúsið komið. En núna árið 2010 eru 280 nemendur í skólanum og það þýðir að það eru um 280 fjölskyldur sem þiggja þjónustu skólans. Þetta er því fjölbreyttur hópur og auðvitað kemur ýmislegt upp á í lífi alls þessa fólks sem getur haft áhrif á skóladaginn hjá nemendum. Skólinn leitast þó við að mæta nemendum með skilningi og taka tillit til aðstæðna þeirra.
Við í Laugalækjarskóla höfum verið lánssöm með hverfið því hér býr gott fólk sem hefur almennt mikinn áhuga á menntun og skólagöngu barnanna og unglinganna sem hér búa. Í skólanum eru nú að meðaltali 23 nemendur í bekk í öllum árgöngum. Í skólunum í Reykjavík á árinu 1960 var meðaltalið 30-35 svo fækkunin er veruleg. Núna er aðstæður í skólanum allt öðruvísi bæði fyrir nemendur og kennara. Í byrjun voru t.d. harðir tréstólar en núna eru flottir stólar með púðum á. Við notum líka tæknina til að læra á nýja hluti en í byrjun skólans voru t.d. engar tölvur, engar ljósritunarvélar og engar snertitöflur. Við erum því heppin að lifa á 21. öldinni, í skóla með alla þessa tækni. Svo ekki sé minnst á staðsetningu skólans með sundlaug við hliðina á okkur og geta bara gengið í skólann og leikfimi.
Skólinn var ekki alltaf svona stór og fínn með matsal,bókasafn, lyftur og tvær byggingar fyrir nemendur. Fögin í skólanum hafa lítið breyst síðan það var byrjað að kenna þau. Það hefur alltaf verið kennd íslenska, stærðfræði, enska, danska, náttúrufræði og samfélagsfræði. Þegar skólinn byrjaði hétu þau síðastnefndu þó ekki náttúrufræði og samfélagsfræði, heldur Íslandssaga, landafræði og félagsfræði, en núna er þetta allt orðið að samfélagsfræði. Íþróttir hafa alltaf verið kenndar í Laugarlækjarskóla. Einnig eru kenndar valgreinar sem við byrjum að velja þegar við förum í 9. og 10. bekk og eins og við öll vitum byrjum við að velja valgreinar sem okkur líst best á. Það eru margir valmöguleikar en ekki alltaf þeir sömu. Þeir breytast eftir því hvaða kennarar eru hér við störf og þær eru líka misvinsælar .
Hér hafa verið kenndar mjög fjölbreyttar valgreinar. Sem dæmi má nefna sjómennsku þ.e.a.s. nám sem gaf rétt til að taka eins konar sveinspróf í sjómennsku. Þá gátu menn bara sest út í bát og siglt úr höfn og farið að veiða fisk. Einnig hefur verið vinsælt að læra hvernig á að elda og baka, teikna, smíða og mála. Skólaárið hefur lengst mikið síðan skólinn byrjaði. Skólavikan er núna 37 stundir en var 32 árið 1960. Fyrst byrjaði skólaárið í haustlok þ.e. 1. október, svo færðist skólabyrjun fram í september. Núna hefst skólaárið í ágúst en það hefur einnig lengst í hinn endann því nú lýkur því í júní en lengi vel voru skólalok í maí. Þannig að núna byrjum við fyrr og erum lengur.
Kennslustundir hafa alltaf verið 40 mínútur, stundum tvisvar sinnum 40 sem eru 80 mínútur. En það verða alltaf að vera frímínútur á milli því ef kennslustundin væri lengri yrðu nemendurnir óþolinmóðir. Það hafa verið gerðar tilraunir með 60 mínútna tíma, en það hefur ekki gengið vel. Hádegishléið hefur alltaf verið í kjarasamningi kennara. Ef skólastjóra finnst hléið of langt og vill fá að breyta því í samráði við nemendur, þá þarf hann líka að fá samþykki kennaranna.
Hvernig hafa reglur og skyldur breyst? Það hafa alltaf verið til ákveðnar grundvallarreglur um samskipti og mætingar en þær hafa breyst með lögum um réttindi og skyldur nemenda sem voru ekki til hérna áður fyrr. Það var kennarinn sem réði öllu og hann stjórnaði öllu sem fór fram í kennslustundum . |
English
We have been lucky with the neighbourhood. On average we have 23 students in each class in Reykjavík. In schools in Reykjavík in the year 1960 the average was only 30-35 which is less than it is today. The school‘s facilities is quite different now. When it was first opened there were only hard wooden chairs, but now there are ones with soft cushions. We also use technology to learn new things, but back then there were neither computers nor photocopiers. So if you think about it, we are very lucky to live in the 21st century with all this technology. Not to mention the school‘s location opposite a pool, and being able to walk to school and the gym.
The school wasn‘t always this fancy with a foodcourt, hallways, elevators and two buildings. The subjects have changed a little since they were first taught. There has always been taught Icelandic, English and Danish which have been number one, then natural history and sociology. But when the school opened they weren‘t called natural history and sociology, but history of Iceland, geography and sociology. Gymnastics have always been taught at Laugalækjarskóli. There are also subjects that we pick ourselves when we go to 9th and 10th grade, and as we all know we pick the ones we like best. There are many choices but not always the same. They change depending on which teacher is teaching, and some subjects are more popular than others. The things that have been taught here range from fisherman to cooking, drawing and painting.
The school year has increased since school first started. The week is now 37 hours long. At first, the school year started at the end of the fall. It used to start October 1st and then moved forward to September. Now it has moved all the way to August, but it has always ended in May. So now we start earlier and end later.
Each period has always been 40 minutes, sometimes two times 40, which is 80 minutes. But there always has to be recess in between, because if the period would be any longer the stundents would become impatient. There have been studies about 60 minute periods which are not promising. There has always been a contract regarding the lunchbreak. If the principal thinks the break is too long and wants it changed, he needs the teachers‘ consent.
How have the rules and duties changed? There have always been basic rules to begin with, but they change with laws and right, and students‘ obligations did not excist before. It was the teacher that decided everything that went on. |
|