Við kynntum okkur sögu hinnar víðfrægu Barbie-dúkku og leikfangafyrirtækisins sem skapaði hana, Mattel. Þar sem dúkkan átti 50 ára afmæli í fyrra, árið 2009, kom upp sú hugmynd að fjalla um hana, en það var einnig hagstætt því þema lokaverkefnisins er jú menntun, listir og vísindi í 50 ár.
Því meiri upplýsingar sem við fengum um tenginguna milli leikfanga og uppeldis barna, því meira langaði okkur að kynna okkur Waldorf-stefnuna og upphafsmann hennar. Í kjölfar þess ákváðum við að sauma svokallaða Waldorf-dúkku, en hún er eitt þekktasta sköpunarverk Rudolf Steiner, skapara stefnunnar.
Leikfangamarkaðurinn hefur oft verið talinn einn af spilltustu mörkuðunum, þar sem börn eru notuð í því skyni að græða peninga. Þess vegna kynntum við okkur þann markað og hvernig hann hefur breyst síðastliðna hálfa öld, en með því gátum við myndað okkar eigin skoðun á málinu.
Við gerðum okkur ferð í Laugarnesskóla í þeim tilgangi að leggja nokkrar spurningar fyrir 6. bekkinga. Þar spurðum við hvernig leikhættir þeirra eru og hvaða skoðun þeir hafa á leikfangamarkaðnum. Við tókum einnig upp viðtöl við þrjá 6. bekkinga af hvoru kyni þar sem spurningarnar voru ítarlegri. Við kynnum síðan niðurstöðurnar á skífuriti til sjá heildarmyndina betur og hvernig niðurstöður sveiflast til eftir því hvort kynið svarar.
Eftir rannsóknina uppgötvuðum við hversu umfangsmikill og harðsvíraður leikfangaiðnaðurinn er og hve einfalt er að glepja börn. |