|
Latibær
Latibær er ef til vill eitt þekktasta barnaefni sem Ísland hefur sent frá sér. Magnús Scheving átti hugmyndina að þessu gífurlega vinsæla efni sem upprunalega var aðeins bók og leikrit. Á aðeins nokkrum árum hefur Latibær þróast til muna. Hugmyndin að Latabæ var keypt af sjónvarpsstöðinni Nickelodeon fyrir skömmu og byrjuðu þeir að framleiða þætti, nefnda Lazy -town, gerða út frá leikritinu. Í dag eru Lazytown þættirnir sýndir á stærstu sjónvarpsstöðvunum í heimi, í yfir 78 löndum.
Lazy town er afsprengi Latabæjar. Íþróttaálfurinn sem einu sinni var álfur með appelsínugula húfu hefur þróast yfir í Sportacus; geimálf sem býr í geimskipi, reiðubúinn að koma íbúum Lazy Town til bjargar frá nammiáti og óhollu líferni sínu. Þættirnir voru fyrst sýndir í bandarísku sjónvarpi í ágúst 2004 og kostar hver þáttur u.þ.b 1,000,000 Bandaríkja dollara. Þeir eru teknir upp í stúdíói sem staðsett er í Garðabæ.
Magnús hefur þurft að sæta þó nokkurri gagnrýni vegna þessarar þróunar; sumum finnst Latibær vera kominn út í öfgar; búið sé að gera barnaefnið að söluvöru og gróðavél fyrir framleiðendur. Aðrir eru ekki á sama máli og segja að þættirnir hvetji til heilbrigðara lífernis meðal barna. Forseti Íslands tjáði sig um málið og sagði að Latibær væri góð landkynning fyrir Ísland og að spara mætti stórfé með komu þessara þátta þar sem offita og sykursýki barna kosta samfélagið mikla peninga. Sumir töldu þetta vera ódýra lausn á dýru vandamáli og að ekki væri hægt að leysa vandann með enn öðru sjónvarpsefni sem boðar heilbrigt líferni.
Það fer þó ekki á milli mála að framleiðendur þáttanna hafa grætt fúlgur fjár á því að selja Latabæjarvörur; allskyns óþarfa svo sem sængurföt, nestisbox, skriffæri, klæðnað og margt fleira. Oftar en ekki eru þetta lélegri vörur en aðrar og þó dýrari.
Í kosningu um kynþokkafyllstu konu Íslands árið 2006 var Solla stirða kosin í áttunda sæti af hlustendum Rásar 2. Margir spurðu sig að því hvort þetta væri í lagi og heit umræða skapaðist á netsvæðum. Leikkonan sem lék Sollu Stirðu þá var 15 ára gömul. |