Mengun

Nú á dögum er meirihluti leikfanga gerður úr plasti og áhyggjur aukast meðal vísindamanna og foreldra af því að þessi þróun gæti reynst skaðleg börnum.
Plastleikföng, líkt og dúkkur og bílar, gefa frá sér skaðleg eiturefni sem menga andrúmsloft og vatn. Foreldrar kaupa í auknum mæli umhverfisvæn leikföng sem gerð eru úr viði. Hættulegasta plastefnið er svokallað PVC, sem notað er í ýmis leikföng til að fá fram ákjósanlega áferð og sveigjanleika, en einnig í þrykkt letur og myndir á barnaföt. Efnið er einnig notað í snuð, en hægt er að fá þau án efnisins. Þar sem barnið er sífellt með plastið í munni sínum er enn meiri hætta á ferðum.
Áhrif eiturefnanna á börnin eru misjöfn. Þau geta valdið krabbameini, lifrar- og nýrnasjúkdómum eða að brjóst stelpna þroskist of snemma. Skaðleg eiturefni hafa verri áhrif á börn en fullorðna því líkamar þeirra og líffæri eru minni, en þá tekur það styttri tíma fyrir eiturefnin að dreifast um líkamann. Þau eru einnig að þroskast svo efnin geta annað hvort hægt á þroska eða flýtt honum.

Samtök sem stuðla að umhverfisvænum lifnaðarháttum, líkt og Greenpeace, hafa reynt að sporna gegn framleiðslu á PVC síðan árið 1987, en sú þróun hefur verið hæg. Árið 1995 samþykkti sænska þingið að hætta allri framleiðslu á varningi sem inniheldur PVC, en það var fyrsta landið til að samþykkja þá stefnu. IKEA, Lego og Hennes & Mauritz hafa einnig tekið PVC úr allri framleiðslu sinni, en ýmis fyrirtæki, líkt og Nike, hafa smátt og smátt dregið úr PVC í framleiðsluvörum sínum.
Flest leikföng úr plasti eru brennd til ösku eftir notkun eða þeim er safnað saman á þar til gerðum landskikum. Í pólýester og plasttimbri er endurunnið plast, en ekki er hægt að endurvinna þessi efni. Erfiðast er að endurvinna PVC, en hlutfall af endurunnum leikföngum úr því efni er minna en 1%.
Varningur sem inniheldur plastefni er merktur með tilteknu merki, þar sem tölur frá 1 til 7 koma fyrir eftir því hvers konar plastefni er í vörunni. Efni sem inniheldur PVC er merkt með tölunni 3.

Neytendur eru sífellt að gera sér grein fyrir skaðsemi leikfanga úr ónáttúrulegum efnum, en þróun leikfangamarkaðarins er hægfara. Leikföng sem gerð eru úr viði og eru ekki máluð eða lökkuð eru bæði mun umhverfisvænni og endingarbetri en þau sem gerð eru úr plasti og ganga fyrir rafhlöðum. Þau stuðla einnig að betra ímyndunarafli og sköpunargáfu eins og Waldorfstefnan leggur áherslu á.