Leikföng níunda áratugarins

Margir virðast á þeirri skoðun að leikföng frá níunda áratugnum hafi verið ein þau skemmtilegustu og litríkustu sem börn hafa leikið sér með. Mörg þau vinsælustu hafa nú orðið mun verðmætari heldur en þegar þau sátu uppi á hillu fyrir 20 árum og hér munum við fjalla nánar um þau.

Ponyhestar urðu vinsælir á níunda áratugnum, litríkir plasthestar með greiðanlegt fax og tagl sem höfðu mismunandi nöfn og tilheyrðu ákveðinni tegund. ,,Góðir“ eigendur keyptu hús undir ponyhestinn sinn og gátu valið að kaupa sér kofa jafnt sem kastala undir leikfangið í öllum stærðum og gerðum.
Cabbage Patch Kids dúkkur voru áberandi vinsælastar á þessum áratug, mæður börðust fyrir að eignast þær og gengu margar hverjar særðar út úr leikfangaverslunum. Sú staðreynd að dúkkurnar væru ekki sérlega andlitsfríðar var umrædd en þrátt fyrir það urðu börn vitlaus í að eignast þær af einhverri ástæðu. En dúkkurnar voru gott dæmi um tískubylgju sem deyr að lokum út, því að nú í dag eru þær ekki mikils virði nema maður eigi fyrstu gerðina.


Að lokum má nefna hina svokölluðu Care Bears, þeir voru bangsar sem framleiddir voru fyrst eftir myndum í þakkarkortum árið 1981. Bangsarnir eru enn til sölu og koma í mismunandi litum með mismunandi tákn á maganum en táknin koma í 10 mismunandi gerðum og lýsa skyldum þeirra og persónuleika, börn eru því ekki í vandræðum með að finna sína uppáhalds bangsa. Sjónvarpsþættir, sem greindu frá ævintýrum bangsanna, komu út árið 1985 og voru þeir sýndir í 3 ár en á þessum árum kom ein bíómynd út á ári þar sem bangsarnir voru í aðalhlutverkum og góðmennskan í fyrirrúmi. Allir elskuðu bangsana, ekki bara börnin heldur kunnu kennarar og foreldrar vel að meta góðmennsku þeirra og hin uppbyggilegu gildi sem þeir boðuðu.
Tölvuleikir voru spilaðir af eldri börnum í spilasölum og PC tölvum en vinsælustu leikirnir voru Pac Man og Space Invaders. Fljótlega náði Nintendo svo yfirhöndinni og leikföng urðu ekki bara flóknari heldur mun dýrari.