|
Leikföng síðustu tíu ára
Þeir sem fæddir eru fyrir aldamótin minnast æskunnar með leikföngum eins og kubbum, dúkkum og spilum; sannkallaðir töfrar í augum barns sem gat leikið sér tímunum saman að trékubbi með ímyndunaraflið að vopni. Ef barn sem ólst upp eftir aldamótin er spurt um eftirminnilegustu leikföng æskunnar verður svarið allt öðruvísi. 
Strákarnir minnast e.t.v fjarstýrðra bíla, fljúgandi flugvéla, risaeðlna með gervigreind og plastkubba einsog Lego en stúlkur minnast Bratz, plasthesta með bleik tögl, búðarkassa og fleiri leikfanga sem öll voru úr plasti.
Leikföng hafa þróast ógnarhratt í gegnum árin, svo hratt að erfitt er að trúa því að fyrir rúmlega 50 árum hafi krakkar jafnvel leikið sér með leggi og skeljar hér á Íslandi.
Það sem hefur einkennt síðustu 10 ár í leikfangaiðnaði eru leikföng knúin áfram með rafhlöðum. Fyrir tveimur árum var byrjað að framleiða rafknúin leikföng með gervigreind sem geta hlýtt allt að 100 skipunum. Sérfræðingar telja að gervigreind í leikföngum sé framtíðin og fyrirtæki keppast við að framleiða leikföng með bestu gervigreindina. Verðið á leikföngum hefur rokið upp úr öllu valdi, sum eru svo dýr að þau gætu jafnvel verið fermingagjafir.
Mest seldu leikföng 2. áratugar 21. aldar eru dýr sem ganga fyrir rafhlöðum, hlaupahjól og Bratz dúkkurnar sem hafa tekið yfir leikfangamarkaðinn. Leikföng verða sífellt flóknari en þó þarf barnið oft á tíðum ekki að beita sömu sköpunargáfu og ímyndunarafli til að geta leikið sér með þau.
|