![]() |
|
Leikföng tíunda áratugarinsÁ 10. áratugnum voru siðferði og vistfræði aðal umræðuefnið og umhverfisáhyggjur voru miklar. Leikföng voru þar ekki undanskilin og fólk fór að velta því fyrir sér hvort skaðleg efni væru í leikföngum. Ýmis konar efni voru bönnuð við framleiðslu leikfanga og í ýmsum verksmiðjum var eftirlit hert. Í byrjun áratugarins var mikið selt af geisladiskum, tölvum og tölvuleikjum. Um helmingur seldra leikfanga voru tölvuleikir, ber þar helst að nefna Game Boy sem var framleiddur af Nintento tölvuleikja samsteypunni.
Sífellt vinsælla varð hjá leikfangaframleiðundum að tengja vörur sínar við sjónvarpsefni því það skilaði meiri hagnaði. Þættir eins og Stubbarnir (Teletubbies) ruddu sér leið og urðu eitt vinsælasta barnaefni áratugarins. Ýmsar vörur tengdar þáttunum voru seldar og hagnaðurinn hljóp á milljónum. Pokemon tölvuleikirnir sem upphaflega voru hugmyndafóstur tölvuleikjahönnuðarins Sathoshi Sajiri slógu í gegn seint á 10. áratugnum. Það var þó ekki fyrr en farið var að framleiða þætti og myndir eftir tölvuleikjunum sem Nintendo fór fyrst að græða fyrir alvöru. Aðalpersónur þáttanna eru unglingar sem lifa í heimi þar sem allt snýst um Pokemon keppnir.
|