|
Waldorf-stefnan
Grunninn að Waldorf uppeldisfræðinni lagði austurríski náttúruvísindamaðurinn Rudolf Steiner (1861-1925) en hann var náttúruvísindamaður og sálfræðingur. Hann lagði grunninn að hugmyndafræði sem kölluð hefur verið mannspeki.
Megináhersla er lögð á að ná jafnvægi milli þeirra þriggja leiða sem tengja manninn umheiminum; í gegnum líkamlegt starf, tilfinningalífið og á hugsanasviðinu. Í Waldorf- uppeldisfræði er rík áhersla lögð á að styrkja tengsl barnanna við náttúruna og að barnið öðlist alhliða þroska. Nemendurnir læra í gegnum listina og þroska þannig ímyndunaraflið. Fyrsti skólinn sem fylgdi þessari stefnu var opnaður í Stuttgart árið 1919 og naut mikilla vinsælda. Brátt urðu til leikskólar sem fylgdu sömu stefnu. Í dag eru fleiri en 900 Waldorf skólar í 83 löndum út um allan heim.
Waldorfskólinn Sólstafir er sjálfstætt starfandi skóli í Reykjavík en reknir eru tveir leikskólar og einn grunnskóli á höfuðborgarsvæðinu.
|