Þegar kemur að rokki er Bretland næst-mikilvægasta landið, með hljómsveitir eins og Bítlana, the Rolling Stones, Pink Floyd, David Bowie og fleiri. Sérstaklega Bítlarnir, sem óðu yfir sjöunda áratuginn með sífellda smelli. Bítlamanían var líklega stærsta tískufyrirbrigði rokksins. Strákar allstaðar hermdu eftir löngu klippingunum og nokkuð óvenjulegu fötunum þeirra, hljómsveitir voru stofnaðar og fólk gerði hluti öðruvísi. Bítlarnir sáu fyrir komu tónlistarmyndbanda með myndunum þeirra, notuðu óvenjuleg hljóðfæri, sömdu flókin lög fyrir plötur í listrænt hönnuðum plötuumslögum og gerðu m.a. Abbey Road og Rickenbacker gítara vinsæla. Og hver hefur ekki heyrt lögin þeirra?
Þegar þeir voru sem vinsælastir fylltust allir tónleikarnir þeirra af öskrandi aðdáendum. Lögreglan og sjúkraliðar voru alltaf nálægt út af æsingnum. Þeir voru fjórir og þeir voru fjórum sinnum verri en Elvis þegar kom að kvenaðdáendunum. Og gráðug fyrirtæki sáu þetta sem ótrúlegt gróðatækifæri, með Bítlabollum, Bítlahárkollum, Bítlaklukkum, Bítladúkkum, Bítlatyggigúmmíi og svo framvegis. Sá sem að græddi mest á þessu var Nicky Byrne, sem stofnaði fyrirtæki til að stjórna Bítlavörunum í umboði Brian Epsteins og græddi marga milljónir dollara og punda.
En Bretland hefur skapað fleiri tískufyrirbæri en bara Bítlana. Önnur hljómsveit hafði kannski ekki jafn mikil áhrif á tísku meðaljónsins, enda varð hún meðal annars fræg fyrir afskaplega hýran klæðnað og hegðun á tónleikum. Sú hljómsveit var Queen, en þeir hafa verið nefndir sem innblástur af jafn ólíkum hljómsveitum og Iron Maiden, Metallica, Green Day og Foo Fighters. Þeir sömdu einnig þema Flash Gordon og Highlander, sem eru báðar vel-þekktar kvikmyndir.
Eins og Bítlarnir voru Queen nokkuð týpísk tveggja gítara hljómsveit, með Freddie Mercury sem söngvara og píanóleikara. Og eins og Bítlarnir var tónlistin þeirra alls ekki týpísk. Reyndar sömdu þeir sum lög sérstaklega til að fár áheyrendur til að syngja eða klappa með, eins og „We Are The Champions“ eða „Radio Ga Ga“. Þeir voru hrikalega vinsælir, sérstaklega í Japan, og höfðu svipað mikil áhrif á tónleikahald og KISS.
Þetta er því miður skottlaus text þar sem við fjöllum ekki um the Rolling Stones.