Make my day, punkKlæðnaður hjá rokkurum er mjög víðtækur og fer klæðnaðurinn aðallega eftir ártölum. Klæðnaðurinn fer líka eftir því hvernig rokk er verið að tala um. Á gull-áratugnum eða 1960 þegar Elvis Presley var uppi og gerði allt brjálað voru rokkarar þeir sem að voru með sólgleraugu og í hvítum glansandi þröngum fötum. Nú í dag er litið á þá sem poppara og þvíumlíkt. Svo árið 1963 þegar bítlarnir urðu vinsælir fór fólk að spyrja sig að því hvernig rokkarar ættu að klæða sig því að bítlarnir voru þá jakkafata hljómsveit. Seinna á sjötta áratugnum kom glam rock við í sögu og sem dæmi má nefna Queen og Elton John, og þá var fólk aftur í þessum þröngu gyrtu fötum en sumir líka í leðurjökkum.

Í byrjun sjöunda áratugar fór rokkið að skiptast í fjölmargar áttir og það er mjög erfitt að segja síðan þá hvað réttu rokk fötin eru, en eitt er víst og það var það að hafa sítt hár þýddi að þú værir rokkari. Síðan er líka talið að metal hafi byrjað seinna á sextugasta áratugnum en þá klæddist fólk ekki eins metal fötum og við þekkjum það í dag. Sem dæmi má nefna Led Zeppelin. Þeir voru bara í þessum þröngum gyrtu fötum með langt hár. En hinsvegar núna í dag eru þessir svokölluðu metalhausar í öllu svörtu, stundum í leðurjakka og bara harðir yfir höfuð. Nú í dag er rokk búið að fara í svo fjölmargar áttir, að klæðnaðarburður er ekki aðalatriðið, heldur bara það að þú sért að spila eitthvað á rafmagnsgítar og með trommum. Þú getur séð heila hljómsveit sem er í leðurfötum, eða bara jakkafötum, og svo eru líka aðrar sem eru eingöngu í þröngum flauelsbuxum, þetta fer aðallega eftir því hvernig rokk er verið að tala um.