Þessi síða er listi yfir slangur notað í rokki. Auðvitað getum við ekki fjallað um öllur slanguryrði sem fyrirfinnast í rokki, en þetta ættu að vera sum af þeim algengustu.

Tónlistargöltur – Manneskja sem spilar alltaf tónlist óháð samhengi og óháð hvort það sé viðeigandi eður ei

Rótari – Manneskjan sem sér um að fara með allar græjur milli „gigga“ og passar að allt sé á réttum stað og taka græjur til eftir „spileríið“

Gig – Tónlistarviðburður. Þegar að hljómsveit spilar fyrir fólksfjölda.

Spilerí – Þegar að tónlistarmaður tekur upp hljóðfæri sitt og fjallar um tónlist.

Trommaramelur – Trommari sem brýtur kjuðana sína þegar hann spilar. Það er talað um trommaran sem „fokking melur“

Fokking hálfviti – Gaur sem tekur sóló þegar að hann á ekki að taka sóló.

Sóló – Tekið af enska orðinu „solo“ t.d Flying solo þýðir að fljúga einsamall.

Headbang – Höfuðrykkja. Að fleygja haus sínum í margar áttir, sem veldur því að hárið á manni fleygist í margar áttir og lætur þig líta út fyrir að vera hardcore.

Hardcore – Harður kjarni, t.d. Hard rock er Harðkjarna rokk á íslensku.

Mörður – „mökkaðasti“ gaurinn á tónleikunum. Eða í öðrum orðum gaurinn sem sefur hjá feitu fullu gellunni eftir tónleikana

Plögga – það að ná í eitthvað, bjarga einhverju eða redda einhverju, t.d að plögga viðtal.

Mökkaður – að vera sjúklega þreytulegur og lélegur

Mosh eða það að mosha – að byrja að gera brjálaða hluti með hóp í tónleikum, eins og að allir byrja að höfuðrykkja eða stinga upp á wall of death.

Dauðaveggur (wall of death)Áhorfendur á tónleikum stilla sér í tvo hópa og hlaupa að hvort öðrum

Voxið – notað  oft þegar rætt er um söng komið frá orðinu vocals.

Áhorfendarenna (Crowd surfing) – Þegar að einhver meðlimi hljómsveitarinnar lætur sig fara á milli áhorfenda á meðan að hann er ofan á áhorfendunum.

Áhorfendastunga (Stage diving) – Þegar að einhver stingur sér í áhorfendur eins og að einstaklingurinn sé að stinga sér í sundlaug.