Mosh pit eða Moshing er atferli metalhausa og pönkara sem að hófst á sjötugasta áratugnum þegar punk var orðið vinsælt. Það er þegar fólk fer að höfuðrykkja (headbanga) eins og það kallast eða skella hausum í hvort annað og fara að ýta hvort öðru með mikilli brjálæði á tónleikum. Með Moshing fylgir oft með           áhorfendastunga (stage diving), áhorfendarenna ( crowd surfing), hljóðfæra eyðilegging (instrument smashing) og jafnvel veggur dauðans (wall of death)

Mosh pit getur líka verið hættulegt. Margir hafa dáið á meðan að mosh pit hefur átt sér stað. Þess vegna er bannað á sumum tónleikastöðum að framkvæma mosh pit því að annars er þér hent út úr tónleikastaðnum og þá færð þú aldrei aftur að fara á staðinn.

Wall of death er líka eitt atbrigði af  mosh pits.  Það er atferli sem  byrjaði með hljómsveitinni Lamb of God sem er heavy metal hljómsveit. Þegar Lamb of God eru að flytja lagið Black Label þá fær Randy Blythe söngvari Lamb of God áhorfendur til þess að skipta sér í tvo hópa sem snúa hvor að öðrum, næst eiga allir að hlaupa áfram á fullum hraða sem leiðir til þess að hóparnir skella hvor á annan. Ekki er vitað afhverju fólk gerir þetta en þetta er aðallega af völdum hópþrýstings og söngvarans sem segir aðdáendum að stilla sér upp. Þetta er einnig vegna þess að reið tónlist gefurmeira adrenalín kick og gerir menn árasargjarnari og þess vegna fær fólk  löngun til þess að hoppa um og ráðast hvort á annað.

Fróðleiksmoli: Talið er að hljómsveitinn Bad Brains sem spilar reggae/punk tónlist hafa byrjað á hugtakinu mosh pit Á tónleikum þegar hlutirnir voru að fara að hitna sagði söngvarinn „Okay lets mash it up“ en út af jamaíska hreimnum hans heyrði fólk ekki alveg hvað hann sagði og flestir töldu hann segja „mosh“ í staðinn fyrir „mash“ og þannig var orðið mosh til.